Gistimöguleikar fyrir gesti Landsmóts

Um nokkurra mánaða skeið hefur starfsfólk Landsmóts boðið væntanlegum gestum mótsins aðstoð við leit að hentugu húsnæði til að leigja í landsmótsvikunni ásamt því að þeir sem vilja leigja frá sér heimili, sumarhús, ferðavagna eða annað, hafa verið hvattir til að hafa samband. Til að flýta enn meir fyrir samskiptum leigusala og tilvonandi leiguaðila hefur verið sett á laggirnar Facebook síða, sem heitir Landsmót hestamanna 2026 - gistimöguleikar; https://www.facebook.com/profile.php?id=61591643903239. Hér er leigusölum og áhugasömum leigjendum frjálst að setja inn beiðnir og auglýsingar. 

Við hvetjum gesti til að gera verðsamanburð og leita þar til að hentug lausn finnst og eins hvetjum við eigendur fasteigna til að leita sanngjarnra lausna varðandi verð. Við höfum þegar sent þeim sem vilja leigja frá sér rými tillögu að viðmiðunarverði pr. mann pr. nótt, en auðvitað er öllum frjálst að semja um það verð sem þau vilja semja um.

Við ítrekum að Landsmót tekur enga ábyrgð á leiguviðskiptum, við erum eingöngu að liðka fyrir með upplýsingamiðlun.

Hér á heimasíðunni, undir Viðburðurinn - Gisting má sjá uppfærðan lista af húsnæði til leigu, uppfært 28.júní.