Íbishóll aftur sigurvegari ræktunarbúa

Magnús og María glæsileg. Mynd Freydís Bergsdóttir
Magnús og María glæsileg. Mynd Freydís Bergsdóttir

Það voru frábærar sýningar ræktunarbúa sem sáust hér á aðalvellinum í gærkvöldi en samtals 12 ræktunarbú komu fram. Kosning fór fram í gegnum HorseDay appið og er það Íbishóll sem stendur uppi sem sigurvegari ræktunarbúa aftur. Íbishóll sigraði líka á Landsmóti Hestamanna í Reykjavík 2024. 

Öll hrossin sem sem koma fram fyrir hönd Íbishóls eru útaf Ósk frá Íbishóli sem er undan fyrstu ræktunarhryssunni henni Gnótt frá Ytra-Skörðugili. Silkidrengur er undan Stillingu frá Íbishóli, Óskasteinsdóttir. Seytla og Óskamey eru alsystur undan Óskasteini og Seylu frá Efra-Langholti. Seytla hefur m.a. hlotið 10 fyrir hægt tölt og 10 fyrir vilja og geðslag, hún hlaut 9,5 fyrir tölt brokk og skeið. Sammæðra þeim er Birta undan snillingi. Höfðingi 4v, Fótur 7v og Gljásteinn eru allir þrír albræður unda Óskasteini og Galsadótturinni Glettu frá Íbishóli. Gljásteinn og Píla hafi bæði hlotið 9,5 fyrir skeið í kynbótadómi. Rúsínan í pylsuendanum er Flygill 6v sem m.a. hefur hlotið 9,5 fyrir hægt tölt og tölt.

Innilegar hamingjuóskir með þessa glæsilegu ræktun og þennan verðskuldaða titil.