Issi með fisk og franskar og Silli Kokkur með borgara á Landsmóti

Fyrir þau sem ætla að koma á Landsmót og búa þar í nokkra daga skiptir fjölbreytt framboð á mat miklu máli.  Fyrir utan stóreldhúsið sem verður í Þráarhöllinni verðum við líka með landsliðið í götubitum á svæðinu. Þar verða fremstir í flokki hinn margverðlaunaði Silli Kokkur með sína mögnuðu borgara og Issi sem flestir eru sammála um að framreiði fisk og franskar betur en aðrir.

Heiðar framkvæmdastjóri kvittaði á samninga við við þessa heiðurmenn á dögunum og þar voru þessar myndir teknar.