Járningamenn klárir í fótaskoðun

Sigurgeir Jóhannsson & Elvar Einarsson
Sigurgeir Jóhannsson & Elvar Einarsson

Á laugardaginn var, þann 23. maí var brautskráning hestafræðideildar við Háskólann á Hólum. Þar voru einnig nokkrir járningamenn útskrifaðir úr sérhæfðu íslensku járningamannaprófi í fyrsta sinn í sögu skólans.

Þetta var mikill hátíðisdagur því samhliða brautskráningu við skólann hélt hestamannafélagið Skagfirðingur WR mót á staðnum.

Elvar Einarsson formaður Skagfirðings og stjórnar LM2026, og Sigurgeir Jóhannsson formaður Járningamannafélags Íslands, notuðu tækifærið og innsigluðu samkomulag um fóta- og búnaðarskoðun á mótinu.

LM2026 óskar járningamönnum og öðrum brautskráðum innilega til hamingju með áfangann!