Jóhanna Margrét Snorradóttir hlýtur Gregersen styttuna. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir
Jóhanna Margrét Snorradóttir hlaut Gregesen-styttuna á Landsmóti hestamanna 2026 á Hólum í Hjaltadal. Jóhanna sýndi fjölda hrossa á mótinu og þótti skara fram úr fyrir framúrskarandi reiðmennsku, snyrtimennsku og fagmennsku í umgengni við hross sín.
Gregersen-styttan er veitt til minningar um Ragnar Gregesen, sem var öðrum hestamönnum fyrirmynd þegar kom að umhirðu hrossa sinna, snyrtilegum klæðaburði og prúðmannlegri framkomu. Verðlaunin eru meðal virtustu viðurkenninga sem veittar eru á Landsmóti og leggja áherslu á þau gildi sem einkenna góða hestamennsku jafnt innan vallar sem utan.
Styttan er veitt þeim knapa sem skarar fram úr í A- eða B-flokki gæðinga og sýnir prúðmannlega reiðmennsku á afburða vel hirtum hesti. Val á handhafa verðlaunanna er í höndum dómara mótsins í samráði við mótsstjóra.
Með veitingu Gregesen-styttunnar er heiðraður knapi sem sameinar framúrskarandi reiðmennsku, fagmennsku og virðingu fyrir hestinum – þau gildi sem Ragnar Gregesen lagði ríka áherslu á og lifa áfram í þessari virtu viðurkenningu.
Landsmót hestamanna óskar Jóhönnu Margréti Snorradóttur innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu.