Hér á Hólum er sennilega að finna eitt stærsta rafmagnstjaldsvæði í sögu Íslands! Íbúafjöldinn er álíka og í öllu sveitarfélaginu Snæfellsbæ - sem er auðvitað bara geggjað og segir til um fjölda góðra gesta!
Þess vegna er töluvert álag á rafmagnstjaldstæðum. Hér eru því vinsamleg tilmæli um hóflega notkun rafmagns og samtímaálagið er mjög mikið.
Það útskýrir stutt rafmagnsleysi í gærkvöldi.
Starfsmenn mótsins vinna að úrbótum og fylgjast grannt með stöðunni.
Veðurspáin er með allra besta móti um helgina. Gerum þetta saman.
Rafvirkinn hvetur hjón og annað sambúðarfólk, núverandi sem og tilvonandi, til að halda hita á hvort öðru. Njótum þjóðhátíðar okkar hestamanna, Landsmóts, saman.
Bestu kveðjur,
Landsmótsteymið.