Kaupfélag Skagfirðinga stærsti styrktaraðili LM2026

Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga (KS) og Áskell Heiðar Ásge…
Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga (KS) og Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts handsala samninginn.

Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga og Áskell Heiðar Ásgeirsson framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna á Hólum notuðu tækifærið við upphaf KS deildarinnar á dögunum og undirrituðu samstarfssamning sín á milli.

Kaupfélag Skagfirðinga hefur um árabil staðið myndarlega á bak við Landmót hestamanna, ekki síst þau sem haldin hafa verið hér í Skagafirði.  Á því verður engin breyting á komandi sumri þegar Landsmót fer fram á Hólum í Hjaltadal, en þar verður KS meðal annars með myndarlegan bás á markaðssvæði mótsins.

Áskell Heiðar segir ómetanlegt að hafa KS með í liði þegar halda á Landsmót, nú sem áður.  Stuðningur þeirra sé mjög mikilvægur og KS komi mótinu til aðstoðar á mörgum sviðum.