Keppendalisti fyrir Landsmót

Keppendalisti fyrir Landsmót.
Í HorseDay appinu er að finna keppendalista (undir knapar) í öllum greinum gæðingakeppninnar.
Knapar bera ábyrgð á sínum skráningum en hér gefst lokatækifæri til að fara yfir skráningar í öllum flokkum. Ef eitthvað er ekki eins og það á að vera er hægt að senda póst með athugasemdum á skraning@landsmot.is fyrir kl. 18:00 föstudaginn 26. júní.