Konráð Valur og Kastor sigruðu 250m skeið

Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk.Mynd Freydís Bergsdóttir
Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk.Mynd Freydís Bergsdóttir

Þá er 250 m skeiði lokið og voru það Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk sem voru fyrstir í mark á 22.18 sek.

Þar á eftir koma Sigurður Sigurðsson og Tromma frá Skúfslæk 22.33 og í því þriðja enduðu Guðrún Lilja Rúnarsdóttir og Kári frá Morastöðum 22.86.