Landsmót á Hólum mun hafa sjálfbærni að leiðarljósi

Á myndinni eru frá vinstri:
Thelma Marín Jónsdóttir, Kjartan Bollason, Rasmun Jensen, Ingibjörg Sig…
Á myndinni eru frá vinstri:
Thelma Marín Jónsdóttir, Kjartan Bollason, Rasmun Jensen, Ingibjörg Sigurðardóttir, Sigríður Rósa Bjarnadóttir, Sören Stochholm, Þórgnýr Dýrfjörð, Karl Steinar Valsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson.

Nemendur í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum stóðu nýverið  fyrir áhugaverðu málþingi á Hólum í Hjaltadal, þar sem sjónum var beint að áhrifum viðburða á samfélög og einstökum þáttum í skipulagi þeirra.

Umhverfis- og öryggismál viðburða voru meðal annars til umræðu auk þess sem rætt var um aukið vægi viðburða og samveru í heimi þar sem einmannaleiki og einangrun er að aukast. Sérstöku kastljósi var beint að Landsmóti hestamanna og menningarhátíðum í landsbyggðum.

Meðal þeirra sem komu fram á málþinginu voru Karl Steinar Guðnason frá embætti Ríkislögreglustjóra, Þórdís Anna Gylfadóttir frá Landsmóti hestamanna, Þórhildur Tinna Sigurðardóttir frá Fjarðabyggð og Þórgnýr Dýrfjörð frá Akureyrarbæ.

Sérstök áhersla var að sjálfbærnihugsun í tengslum við skipulag viðburða, en slíkt hefur lítið verið á dagskrá hérlendis til þessa. Sigríður Rósa Bjarnadóttir MA nemandi við Háskólann á Hólum og danskir sérfræðingar, Rasmus Jensen og Sören Stochholm fræddu gesti um grænar lausnir og heildstæða hugsun um sjálfbærni á viðburðum. Þau þrjú munu einmitt vinna með Landsmóti hestamanna sem haldið verður á Hólum á komandi sumri að því að þar fari fram fyrsti viðburðurinn á Íslandi sem verður skipulagður með sjálfbærni í huga.  Vinna við sjálfbærniáætlun mótsins er þegar hafin og mikil áhersla verður lögð á sorpflokkun, skynsamlega notkun á vatni og rafmagni og vistvænar lausnir.

Málþingið í síðustu viku var skipulagt frá A-Ö af nemendum í eins árs diplómanámi í viðburðastjórnun, en kennari námskeiðsins er Áskell Heiðar Ásgeirsson sem er einnig framkvæmastjóri Landsmóts á Hólum.