Landsmót hestamanna 2024

Undirbúningur fyrir Landsmót 2024 er í fullum gangi.
Dagana 1.-7.júlí 2024 verður Landsmót hestamanna haldið af hestamannafélögunum Fáki og Spretti á félagssvæði Fáks í Víðidal. Verður þetta fjórða mótið sem haldið hefur verið í Reykjavík. 
Landsmót hestamanna 2024 verður tuttugasta og fimmta Landsmótið í röðinni frá upphafi eða frá því að Landsmót var fyrst haldið á Þingvöllum 1950.
Mótið hefur ávallt verið einn stærsti íþróttaviðburður landsins.
Landsmót hafa vaxið að umfangi jafnt og þétt í áranna rás, sérstaklega keppnishlutinn. Kynbótahrossin eiga líka alltaf stóran sess á Landsmóti.

Við hlökkum til að taka á móti hestum og mönnum sumarið 2024.
Miðasala verður auglýst innan skamms.

Hestamannafélagið Fákur
Hestamannafélagið Sprettur

 


Athugasemdir