Landsmót hestamanna 2026 er formlega hafið á Hólum í Hjaltadal og fyrstu keppendur hafa þegar riðið inn á keppnisvöllinn.
Keppni í barnaflokki stendur nú yfir á aðalvellinum þar sem efnilegir knapar sýna glæsilega takta, á meðan dómar fara fram á 4 vetra hryssum á kynbótabrautinni. Fyrsti keppnisdagurinn hefur farið vel af stað og ríkir mikil eftirvænting meðal keppenda, gesta og þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem leggja hönd á plóg.
Sólin skín og bjart yfir mótssvæðinu. Létt er yfir keppendum og áhorfendum sem njóta þess að Landsmót sé loksins hafið í fallegu umhverfi Hóla.
Fram undan er fjölbreytt og spennandi dagskrá með glæsilegum sýningum, keppni, kynbótadómum og fjölmörgu öðru sem gerir Landsmót að einstökum viðburði fyrir alla hestamenn og hestaáhugafólk.
Niðurstöður eru birtar í smáforritinu HorseDay og beina útsendingu er að finna á Eiðfaxi TV.
Við hlökkum til að taka á móti gestum næstu daga og eiga með ykkur eftirminnilega viku á Hólum.
Verið hjartanlega velkomin heim að Hólum á Landsmót hestamanna 2026!