Landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal sett

Elvar Einarsson fór fyrir fánareiðinni. Mynd Freydís Bergsdóttir
Elvar Einarsson fór fyrir fánareiðinni. Mynd Freydís Bergsdóttir

Landsmót var rétt í þessu sett við hátíðlega athöfn á aðalvelli Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal. Hópreiðin var fjölmenn hátíðleg og glæsileg.

Viðstödd athöfnina voru þau Elvar Einarsson formaður hestamannafélagsins Skagfirðings, Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskóla Íslands á Hólum, Logi Már Einarsson  Menningar- nýsköpunar og háskólaráðherra, Magnús Barðdal sveitarstjóri Skagafjarðar, Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður Landssambands hestamannafélaga, Sigrún Brynja Einarsdóttir, ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins, Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands, Sylvía Sigurbjörnsdóttir formaður Félags tamningamanna, Willum Þór Þórsson forseti Íþróttasambands Íslands að sjálfsögðu ásamt gestum landsmóts sem fylltu brekkurnar. 

Sveitarstjóri Skagafjarðar ávarpaði samkomuna sem og Gísli Gunnarson víglubiskup á Hólum og Logi Már Einarsson ráðherra. Karlakórinn Heimir heiðraði Landsmót svo með nærveru sinni og söng vel valin lög hestalög. Einsöng með kórnum söng Guðmundur Ingvar Ásgeirsson. Dagmar Helga Helgadóttir og Valgerður Rakel Rúnarsdóttir   sungu lagið sitt Riddari Kærleikans með Karlakórnum. 

Landsmót Hestamanna á Hólum í Hjaltadal 2026 er nú formlega sett, gleðilegt Landsmót.