Sigga Rósa og Káinn frá Hólum
Á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal er sjálfbærni í forgrunni og markmiðið að gera mótið umhverfisvænna með betri úrgangsflokkun og ábyrgri nýtingu auðlinda. Með sameiginlegu átaki skipuleggjenda, gesta og samstarfsaðila er unnið að því að skapa hreinna og sjálfbærara Landsmót fyrir núverandi og komandi kynslóðir.
Íslenska gámafélagið hefur sett upp sérstakar flokkunarstöðvar víðs vegar um mótssvæðið þar sem gestir geta flokkað úrgang í fjóra flokka: plast, pappír og pappa, matarleifar og blandaðan úrgang. Flokkunarstöðvarnar eru staðsettar á lykilstöðum, meðal annars við tjaldsvæðið, veitingasvæðið og aðalsvæðið, auk sérstakrar flokkunar í mötuneyti.
Til að vekja athygli á mikilvægi flokkunar og gera hana aðgengilega fyrir alla hefur Landsmót fengið óvenjulegan aðstoðarmann – hestinn Káinn frá Hólum, sem minnir gesti á að flokka rétt og hjálpar til við að koma skilaboðunum á framfæri á skemmtilegan hátt.
Með þessum aðgerðum er stigið mikilvægt skref í átt að sjálfbærara Landsmóti þar sem allir geta lagt sitt af mörkum til að draga úr umhverfisáhrifum og stuðla að hreinna og ábyrgara umhverfi fyrir gesti, þátttakendur og íslenska hestinn.