Lífland býður upp á fjölbreytta skemmtidagskrá á Landsmóti

Það verður líf og fjör frá morgni til kvölds á Landsmóti hestamanna á Hólum dagana 5.–11. júlí, þar sem Lífland býður gestum upp á glæsilega skemmtidagskrá samhliða keppni mótsins.

Í Mathöllinni og á Bolabar verður eitthvað við allra hæfi alla vikuna. Fjölskyldur geta notið barnasvæðisins sem verður opið daglega frá þriðjudegi til laugardags, auk þess sem sungið, leikið og skemmt verður með fjölbreyttum hætti. Á föstudeginum fer fram söngkeppni barnanna og á laugardeginum mætir sjálfur Latibær í heimsókn og gleður yngstu gestina.

Fyrir tónlistarunnendur er úr nægu að velja. Á Bolabar verður lifandi tónlist flest kvöld mótsins og kántrýstemningin ræður ríkjum með tónleikum Soffíu Bjargar, Klaufa og skagfirska kántrýbandsins Villtu vestin, ásamt Malen, Sólu og Sigvalda. Hörður G. Ólafsson sér einnig um notalega tónlist í Mathöllinni yfir daginn.

Þeir sem vilja stíga dansspor geta látið ljós sitt skína á stórdansleikjum í Mathöllinni. Á föstudagskvöldinu stíga Magni, Erna, Sigvaldi og stórsveit Landsmóts á svið og á laugardagskvöldinu tekur Stuðlabandið við og sér til þess að mótið endi með stæl.

Íþróttaáhugafólk þarf heldur ekki að missa af neinu, því leikir úr heimsmeistarakeppni karla í knattspyrnu verða sýndir á risaskjá á Bolabar alla vikuna, þar á meðal leikir í 16-liða úrslitum.

Hátíðleg setningarathöfn Landsmóts fer fram fimmtudagskvöldið 9. júlí með glæsilegri hópreið hestamannafélaganna og söng Karlakórsins Heimis sem markar formlegt upphaf að aðalkeppnisdögum mótsins.

Hvort sem gestir koma til að fylgjast með fremstu hestum og knöpum landsins, njóta tónlistar, hitta vini eða eiga skemmtilega stund með fjölskyldunni, þá er ljóst að skemmtidagskrá Líflands verður stór hluti af upplifuninni á Landsmóti hestamanna á Hólum.

Slóð á skemmtidagskrá er HÉR