Til að Landsmót hestamanna heppnist vel verður framreiðsla á góðum mat að vera í traustum höndum. Landsmót hefur nú gengið frá samkomulagi við Rúnar Gíslason og hans góða fólk hjá Kokkunum veisluþjónustu / Spírunni um að þau standi vaktina í mathöllinni á Hólum á komandi Landsmóti. Þetta verður fjórða Landsmótið af síðustu fimm sem þar sem þau stýra stóreldhúsinu, en fyrsta mótið var einmitt á Hólum 2016.
Auk þess sem Rúnar og hans fólk verður með stóreldhús opið fyrir gesti frá morgni til kvölds alla mótsdagana verður mötuneyti starfsfólks þar.
Til að auka enn frekar á fjölbreytnina verður fjöldi smærri aðila með ýmiskonar götubita á svæðinu sem betur verður sagt frá síðar.
Á myndinni má sjá þá Áskel Heiðar framkvæmdastjóra LM og Rúnar handsala samkomulag á dögunum.