Áhugi á Landsmóti 2026 hefur farið fram úr væntingum, en metfjöldi miða hefur þegar selst í forsölu. Aldrei áður hafa jafnmargir tryggt sér miða svo snemma, sem staðfestir stöðu viðburðarins sem einn af hápunktum íslensks sumars.
Landsmót fer fram 5.–11. júlí að Hólum í Hjaltadal, þar sem bestu hestar og knapar landsins koma saman í heila viku af keppni og stemningu. Gestir geta hlakkað til glæsilegra atriða í brautinni yfir daginn, en á kvöldin verður boðið upp á metnaðarfulla og fjölbreytta tónlistardagskrá.
Mikilvægt að hafa í huga:
30. apríl er síðasti dagur til að nýta forsöluafslátt af miðum. Eftir þann dag taka gildi hefðbundin miðaverð.
Þá er mikil sala í stæðum með rafmagstenglum á tjaldsvæðinu og því um að gera að tryggja sér stæði sem fyrst.
Hátíðarhöldunum lýkur þó ekki þegar Landsmóti lýkur. 12. júlí verður haldinn sérstakur Dagur menningar og ræktunar í Skagafirði, þar sem mörg þekkt hrossaræktarbú á svæðinu opna dyr sínar fyrir gestum. Þar gefst einstakt tækifæri til að kynnast íslenskri hrossarækt af eigin raun, hitta ræktendur og sjá framúrskarandi hesta í sínu rétta umhverfi.
Með þessari miklu aðsókn og glæsilegri dagskrá, stefnir allt í að Landsmót 2026 verði ógleymanleg upplifun fyrir alla hestamenn og gesti.
Tryggðu þér miða og vertu velkominn heim að Hólum !