Metfjöldi þátttakenda í gæðingakeppni LM2026

LH hefur tekið út félagafjölda hvers hestamannafélags og koma niðurstöður fram í töflunni hér fyrir neðan, og þá jafnframt hversu marga keppendur hvert félag hefur rétt á að senda í hvern flokk gæðingakeppninnar á landsmótinu að Hólum í sumar.

Fjöldi þátttakenda í gæðingakeppni á landsmóti fer eftir fjölda félaga í aðildarfélögum LH hverju sinni. Hvert hestamannafélag fær eitt sæti í hverjum flokki fyrir hverja byrjaða 125 félagsmenn. Í ár getur fjöldinn orðið 133 keppendur í hverjum flokki en að auki fá efstu 6 hestar á stöðulistum sem ekki komust inn í gegnum úrtökur hjá sínum félögum, þátttökurétt á mótinu.

Hestamannafélag Þátttakendur á LM2026 Fjöldi iðkenda 2026
Hestamannafélagið Adam 1 63
Hestamannafélagið Blær 2 134
Hestamannafélagið Borgfirðingur 4 412
Hestamannafélagið Brimfaxi 2 139
Hestamannafélagið Dreyri 3 342
Hestamannafélagið Fákur 16 1931
Hestamannafélagið Feykir 1 83
Hestamannafélagið Freyfaxi 3 255
Hestamannafélagið Funi 2 156
Hestamannafélagið Geisli 1 19
Hestamannafélagið Geysir 8 923
Hestamannafélagið Glaður 2 178
Hestamannafélagið Glampi 1 18
Hestamannafélagið Glæsir 1 110
Hestamannafélagið Glófaxi 1 63
Hestamannafélagið Gnýfari 1 19
Hestamannafélagið Grani 1 78
Hestamannafélagið Háfeti 1 118
Hestamannafélagið Hending 1 44
Hestamannafélagið Hornfirðingur 2 172
Hestamannafélagið Hringur 2 186
Hestamannafélagið Hörður 6 677
Hestamannafélagið Jökull 8 900
Hestamannafélagið Kópur 1 98
Hestamannafélagið Léttir 4 473
Hestamannafélagið Ljúfur 3 254
Hestamannafélagið Máni 4 380
Hestamannafélagið Neisti 3 267
Hestamannafélagið Sindri 2 154
Hestamannafélagið Skagfirðingur 7 766
Hestamannafélagið Sleipnir 6 706
Hestamannafélagið Snæfaxi 1 94
Hestamannafélagið Snarfari 1 26
Hestamannafélagið Snæfellingur 3 268
Hestamannafélagið Sóti 1 112
Hestamannafélagið Sprettur 12 1457
Hestamannafélagið Stormur 1 72
Hestamannafélagið Sörli 9 1009
Hestamannafélagið Þjálfi 1 114
Hestamannafélagið Þráinn 1 58
Hestamannafélagið Þytur 3 296
Alls:  133 13.624