Lögreglan og viðbragðsaðilar á Landsmóti hestamanna vilja vekja athygli gesta á mikilvægi þess að nota ávallt hjálm þegar ferðast er um svæðið á reiðhjóli eða hlaupahjóli.
Undanfarna daga hefur orðið vart við að margir nýta sér reiðhjól og hlaupahjól til að komast á milli staða á mótssvæðinu, en því miður eru of margir án hjálms. Það eykur hættu á alvarlegum meiðslum ef slys verða.
Gestir eru hvattir til að sýna aðgát, virða umferðarreglur innan svæðisins, aka á hóflegum hraða og nota ávallt hjálm. Með því getum við öll stuðlað að öruggara og ánægjulegra Landsmóti fyrir alla.
Við þökkum gestum fyrir góða samvinnu og óskum öllum áfram góðrar skemmtunar á Landsmóti hestamanna.