„Það er löng saga samstarfs milli Morgunblaðsins og Landsmóts hestamanna og blaðið er einn af okkar helstu styrktaraðilum. Blaðið mun vinna með okkur í því að segja fréttir frá mótinu og það er stefnt að því að gefa út sérblað í aðdraganda mótsins eins og gert hefur verið fyrir undanfarin mót,“ segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Landsmóts hestamanna, eftir að hafa undirritað styrktar- og samstarfssamning við Árvakur vegna Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal í sumar.
„Árvakur verður einn af aðal styrktaraðilum mótsins og erum við glöð með að taka þannig þátt í Landsmóti hestamanna,“ segir Magnús E. Kristjánsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Árvakurs, sem handsalaði samninginn fyrir hönd Árvakurs.