Fjölmiðlafólki er hér með boðið að sækja um fjölmiðlapassa til að fjalla um einn stærsta menningar- og íþróttaviðburð landsins, Landsmót hestamanna 2026, sem fram fer á Hólum dagana 5.–11. júlí.
Landsmót hestamanna er einstakur viðburður þar sem íslenski hesturinn, menningin og keppnisandinn njóta sín til fulls. Viðburðurinn býður upp á fjölbreytt og spennandi efni fyrir fjölmiðla, hvort sem um er að ræða fréttaflutning eða myndatöku, allt í fallegu og söguríku umhverfi Hóla.
Umsókn um fjölmiðlapassa
Umsóknir fara fram í gegnum Google Forms eyðublað sem nálgast má á heimasíðu mótsins. Fjölmiðlafólk er hvatt til að vanda umsóknir sínar þar sem þær verða metnar af stjórn Landsmóts og fjölmiðlafulltrúa.
Umsóknarfrestur er til og með 17. júní 2026 og verða umsóknir sem berast eftir þann tíma ekki teknar til greina. Umsækjendur sem fá umsókn sína samþykkta fá staðfestingu senda í tölvupósti með frekari upplýsingum.
Fyrirspurnir og nánari upplýsingar veitir:
Bryndís Rún Baldursdóttir
Fjölmiðlafulltrúi Landsmóts
Netfang: press@landsmot.is
Vinnuaðstaða fjölmiðla
Á mótssvæðinu verður aðstaða fyrir fjölmiðlafólk með þráðlausu netsambandi. Gert er ráð fyrir að fjölmiðlafólk komi með eigin búnað, svo sem tölvur. Landsmót á Hólum tekur ekki ábyrgð á búnaði sem skilinn er eftir á svæðinu.
Ljósmyndarar
Aðgangur ljósmyndara að keppnisvöllum verður takmarkaður og aðeins ákveðinn fjöldi fær að vera inni á vellinum hverju sinni. Nánari upplýsingar um skipulag og aðgengi verða veittar á mótsstað.
Við hlökkum til að taka á móti fjölmiðlafólki á Hólum í júlí og deila með ykkur þessari einstöku upplifun þar sem íslenski hesturinn og íslensk menning eru í forgrunni.
Hlekkur á síðuna: https://www.landsmot.is/is/vidburdurinn/fjolmidlar