Ræktunarbúin á LM2026

Sýningar ræktunarbúa skipa heiðurssess á Landsmótum hestamanna og á LM2026 verður engin breyting þar á. Ræktunarbúin eru á dagskrá mótsins fimmtudagskvöldið 9. júlí og mun áhorfendum verða boðið að velja bestu ræktunarbússýninguna.

Það ræktunarbú sem sigrar á fimmtudagskvöldi ávinnur sér þann heiður að koma fram á laugardagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku. 

Ræktunarbúi ársins 2025 er boðin þátttaka sem og keppnishestabúi sama árs. Ræktunarbú ársins, Syðri-Gegnishólar / Ketilsstaðir, þáði boðið og verður þar í sterkum hópi búa víðs vegar að af landinu.

Mótsstjórn valdi af handahófi þessi ræktunarbú til þátttöku í sýningu ræktunarbúa: 

Ræktunarbúin:  
1 Efri-Fitjar
2 Finnastaðir
3 Garðshorn á Þelamörk
4 Hof á Höfðaströnd
5 Hrafnagil
6 Íbishóll
7 Kálfsstaðir
8 Sumarliðabær
9 Syðri-Gegnishólar / Ketilsstaðir
10 Varmaland
11 Vatnsleysa / Vallarás
12 Þúfur
   
Til vara:
 
1 Eystra-Fróðholt
2 Tjaldhólar