Róbert og Rökkvi unnu B-úrslitin í unglingaflokki

Róbert Darri Edwardsson og Rökkvi frá Hólaborg. Mynd Freydís Bergsdóttir
Róbert Darri Edwardsson og Rökkvi frá Hólaborg. Mynd Freydís Bergsdóttir

Rétt í þessu lauk B úrslitum í unglingaflokki og voru það þeir Róbert Darri Edwardsson og Rökkvi frá Hólaborg sem urðu efstir með einkunnina 8,77 og fara þeir því upp í A úrslit. Næst á eftir Róbert voru þau Unnur Rós Ármannsdóttir og Gói frá Brjánsstöðum með einkunnina 8,69 og í því þriðja fast á eftir Unni og Glóa voru þær Eyvör Vaka Guðmundsdóttir og Birta frá Bakkakoti með einkunnina 8,68. 

Hér má sjá niðurstöður:

 

Sæti

Keppandi

Heildareinkunn

8

Róbert Darri Edwardsson / Rökkvi frá Hólaborg

8,77

9

Unnur Rós Ármannsdóttir / Glói frá Brjánsstöðum

8,70

10

Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Birta frá Bakkakoti

8,68

11

Álfheiður Þóra Ágústsdóttir / Óskamey frá Íbishóli

8,62

12

Sigurður Ingvarsson / Liljar frá Varmalandi

8,61

13

Aron Dyröy Guðmundsson / Ísafold frá Kirkjubæ

8,60

14

Elimar Elvarsson / Salka frá Hólateigi

8,48

15

Jórunn Edda Antonsdóttir / Jaðar frá Hvolsvelli

8,33