Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Landsmótssigurvegarar

Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór. Mynd Freydís Bergsdóttir
Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór. Mynd Freydís Bergsdóttir

Landsmótssigurvegarar eru þeir Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson með hvorki meira né minna en 9,13 í aðaleinkunn. Á eftir þeim félögum komu þeir Askur frá Holtsmúla 1 og Ásmundur Ernir Snorrason með einkunnina 9,07 og í því þriðja Gandi frá Rauðalæk og Guðmundur Björgvinsson með 8,84. 

Með þessari stórglæsilegu sýningu í örlítið krefjandi vindi lauk Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal 2026. 

Innilegar hamingjuóskir með ykkur. 

Sæti

Keppandi

Heildareinkunn

1

Sindri frá Hjarðartúni / Hans Þór Hilmarsson

9,13

2

Askur frá Holtsmúla 1 / Ásmundur Ernir Snorrason

9,07

3

Gandi frá Rauðalæk / Guðmundur Björgvinsson

8,84

4

Kastor frá Garðshorni á Þelamörk / Konráð Valur Sveinsson

8,82

5

Goði frá Bjarnarhöfn / Jakob Svavar Sigurðsson

8,82

6

Hraundís frá Selfossi / Viðar Ingólfsson

8,80

7

Aþena frá Þjóðólfshaga 1 / Teitur Árnason

0,00

8

Frontur frá Finnastöðum / Jóhanna Margrét Snorradóttir

8,52