Skráning keppenda til þátttöku á Landsmótinu er í fullum gangi, enda úrtökur hestamannafélaganna langt komnar og þær síðust að klárast núna um helgina.
Síðasti skráningardagur á mótið er 22. júní kl. 23:59.
- Slóð á Skráningarkerfi Sportfengs: https://sportfengur.com/#/skraning/karfa
- Skrá keppendur: passa að félag knapa og hests sé rétt skráð og upp á hvora höndina knapi vill sýna.
- A-flokkur ungmenna Gæðingaflokkur 2 = sýningargreinin A-flokkur ungmenna.
- B-flokkur Gæðingaflokkur 2 = sýningargreinin B-flokkur áhugamanna.
- Fara yfir skráningar í körfu og passa að staðfesta þegar tilbúið.
- Millifæra rétta upphæð á uppgefinn bankareikning mótsins og senda kvittun á skraning@landsmot.is með pöntunarnúmeri.
- Skráningu varahesta þarf að senda á skraning@landsmot.is
Nánari upplýsingar er að finna hér á vefnum og einnig er velkomið að senda fyrirspurn á skraning@landsmot.is ef spurningar vakna um málið.