Alltaf líf og fjör á barnasvæðinu
Það er alltaf líf og fjör á barnasvæðinu okkar og barnatjaldið er opið alla daga frá 13:00 - 20:00. Mikil stemning var í andlitsmálun í gær og fullt af krökkum sem mættu í það, á laugardaginn mæta skvísurnar aftur og mála andlit milli klukkan 13:00 og 16:00.
Við minnum á söngkeppni barnanna sem verður í Mathöllinni föstudaginn klukkan 15:00. Skráning verður frá kl. 14:00 við sviðið í Mathöllinni sama dag. Það þarf að koma með rafrænt undirspil fyrir keppnina (Spotify, Youtube, mp3) og er keppnin er fyrir börn 12 ára og yngri. Það eru þau Sigvaldi, Sæþór og Aldís Fjóla sem fá það erfiða verkefni að dæma keppnina og vinningar eru frá HGG og Eques.
Á laugardaginn ætlar svo Latibær að heiðra okkur með nærveru sinni.