Nú þegar rúmlega mánuður er í Landsmót er framboð af gistirými í Skagafirði töluvert og stöðugt berast boð um fleiri valkosti fyrir gesti Landsmóts sem sumir eru enn að leita að hentugu gistiplássi fyrir sig og sína.
Um nokkurra mánaða skeið hefur starfsfólk Landsmóts boðið væntanlegum gestum mótsins aðstoð við leit að hentugu húsnæði til að leigja í landsmótsvikunni ásamt því að þeir sem vilja leigja frá sér heimili, sumarhús, ferðavagna eða annað, hafa verið hvattir til að hafa samband. Öll slík aðstoð fer fram í gegnum netfangið gisting@landsmot.is
Til að flýta fyrir því að allir fái húsnæði við hæfi, hefur Landsmót ákveðið að birta hér lista yfir þá aðila sem hafa boðið fram gistingu til landsmótsgesta.
Við hvetjum gesti til að gera verðsamanburð og leita þar til að hentug lausn finnst og eins hvetjum við eigendur fasteigna til að leita sanngjarnra lausna varðandi verð. Við höfum þegar sent þeim sem vilja leigja frá sér rými tillögu að viðmiðunarverði pr. mann pr. nótt, en auðvitað er öllum frjálst að semja um það verð sem þau vilja semja um. Landsmót tekur enga ábyrgð á leiguviðskiptum, við erum eingöngu að liðka fyrir með upplýsingamiðlun.
Við hvetjum svo þau sem eru með fasteign eða annað skráð til leigu á listanum að láta vita í gisting@landsmot.is ef viðkomandi eign er bókuð til að hægt sé að taka hana af listanum.
Eins hvetjum við enn þau sem hyggjast leigja frá sér fasteign til að láta vita í sama netfang og við bætum viðkomandi á listann.
Fráteknir reitir með rafmagnstengli eru nú uppseldir á mótssvæðinu á Hólum, en að sjálfsögðu stendur öllum miðaeigendum á Landsmóti til boða að tjalda á mótssvæðinu án aukagjalds, en þá án rafmagns og án frátekins svæðis.

