Það verður sannkölluð hátíðarstemning á Landsmót hestamanna þegar Stuðlabandið stígur á svið laugardagskvöldið 11. júlí og sér til þess að enginn sitji kyrr.
Stuðlabandið hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein allra vinsælasta hljómsveit landsins og er þekkt fyrir kraftmikla sviðsframkomu og smitandi gleði. Hljómsveitin hefur komið fram á fjölda stórhátíða víðs vegar um landið þar sem hún hefur skapað ógleymanlega stemningu fyrir gesti á öllum aldri.
Vinsældir sveitarinnar ná þó langt út fyrir landsteinana. Síðasta sumar kom hún meðal annars fram á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss, þar sem hún kynnti íslenska tónlistar- og gleðimenningu fyrir alþjóðlegum áhorfendum með miklum glæsibrag.
Gestir Landsmóts mega því búast við líflegu og skemmtilegu kvöldi þar sem Stuðlabandið mun halda uppi stuði langt fram á nótt – kvöldi sem enginn vill missa af.
Í dag er síðasti sjéns að tryggja sér miða með góðum afslætti, en miðaverð hækkar þann 1 maí.