LM2016 / Mynd: GHP
Á eftir 100 metra flugskeiðsprettum kvöldsins, klukkan 20:15 verður sýning Ræktunarbúa á aðalvelli. Kosningin fer fram í HorseDay smáforritinu og að sjálfsögðu hvetjum við öll til að kjósa sitt uppáhalds Ræktunarbú. Hvort sem gestir mótsins verða á staðnum eða fylgjast með útsendingu á Eiðfaxa TV, þá geta þeir tekið þátt í kosningu um ræktunarbú mótsins, svo það er um að gera að vera klár með smáforritið í símanum!
Búin sem sýna í kvöld verða í þessari röð:
1. Þúfur
2. Íbishóll
3. Hrafnagil
4. Syðri- Gegnishólar/Ketilsstaðir
5. Vatnsleysa/Vallarás
6. Varmaland
7. Kálfsstaðir
8. Efri- Fitjar
9. Hof á Höfðaströnd
10. Sumarliðabær
11. Finnastaðir
12. Garðshorni á Þelamörk