Opnað hefur verið fyrir umsóknir um að taka þátt í sýningu ræktunarbúa á LM2026 í sumar. Tíu umsækendur verða dregnir úr hópi umsækjenda og að auki er ræktunarbúi ársins 2025 er boðin þátttaka sem og keppnishestabúi ársins 2025.
Það ræktunarbú sem flest atkvæði hlýtur í sýningunni á fimmtudagskvöldi ávinnur sér þann heiður að koma fram á föstudagskvöldinu í skemmtidagskrá kvöldvöku.
Mikilvæg atriði varðandi ræktunarbússýningar:
- Sýningartími á hvert bú er 5 mínútur.
- Útfærsla sýningar er alfarið á ábyrgð forráðamanna.
- Fóta- og útbúnaðarskoðun verður viðhöfð auk þeirra viðmiðana um heilbrigði sem mótsstjórn LM setur.
- Að lágmarki skulu 5 hross sýnd og þurfa þau að vera frá sama lögbýli, eða fædd meðlimum sömu fjölskyldu.
- Þátttakendur velja tónlist sjálfir og senda inn texta til þula varðandi kynningu á búinu.
- Á stjórskjá og LED birtast auglýsingar frá búinu á meðan sýningu stendur.
Skráningargjaldið er kr. 220.000.
Þeir hrossaræktendur sem hafa áhuga á að koma fram með sinn hóp eru beðnir að senda inn umsókn um slíkt og athugið að gefa upplýsingar um hvaða hross er stefnt með á sýninguna.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní.
Umsóknir skulu sendar á netfangið hilda@landsmot.is