Matthías Sigurðsson vann B-flokk ungmenna á LM2024.
Hestamannafélögin þurfa að bjóða upp á þessa flokka í sínum úrtökum til þess að eiga rétt á að senda fulltrúa til keppni í þeim á komandi Landsmóti.
Að öðru leyti en fram kemur hér fyrir neðan fer val hrossa til þátttöku í þessum flokkum fram í gegnum úrtökur hestamannafélaganna samkvæmt lögum og reglum LH.
B-flokkur áhugamanna
- Knapar skulu vera í fullorðinsflokki, þ.e. 22 ára eða eldri.
- Hestur getur aðeins keppt fyrir eitt félag hvert almanaksár og þarf að vera í eigu félagsmanns í því félagi (Reglur um gæðingakeppni, gr. 3.1.).
- Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður.
- Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki.
- Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki.
Sjá nánar í reglugerð um B-flokk áhugamanna.
A-flokkur ungmenna
- Einungis keppnispör sem ná gildum árangri í úrtöku síns félags, í A-flokki ungmenna eru gjaldgeng til þátttöku í flokknum.
- Sérstök forkeppni fer fram í A-flokki ungmenna og milliriðill. A-úrslit verða framkvæmd eins og úrslit í A-flokki. Fari þátttakendafjöldi yfir 50, verða að auki riðin B-úrslit.
- Keppendum í barna- og unglingaflokki er heimil þátttaka í þessum flokki (Reglur um gæðingakepni, gr. 7.4.4.).
- Ef skráðir þátttakendur ná ekki 25 þá fellur flokkurinn niður.
- Ekki verða teknir inn keppendur af stöðulista í þessum flokki.
- Knapi má einungis skrá einn hest til þátttöku í þessum flokki.
Þátttökuréttur í þessum flokkum miðast við fjölda félagsmanna sem skráðir eru í félagatali hestamannafélaga LH þann 15. apríl 2026. Aðildarfélög mega senda 1 keppanda fyrir hverja 250 félaga og svo framvegis.
Fyrirkomulag þetta er unnið í samvinnu keppnisnefndar LH og mótsstjórnar LM2026.