LM2016 / Mynd: GHP
Mótsstjórn hefur dregið í rásröð í sýningu ræktunarbúa á föstudagskvöldinu 10. júlí kl. 20:15. Tólf bú munu mæta til leiks og sýna gestum Landsmóts úrval hrossa úr sinni ræktun. Áhorfendum gefst kostur á að taka þátt með því að kjósa sitt uppáhaldsbú og fer kosningin fram í HorseDay smáforritinu. Hvort sem gestir mótsins verða á staðnum eða fylgjast með útsendingu á Eiðfaxa TV, þá geta þeir tekið þátt í kosningu um ræktunarbú mótsins, svo það er um að gera að vera klár með smáforritið í símanum!
- Þúfur
- Íbishóll
- Hrafnagil
- Syðri-Gegnishólar / Ketilsstaðir
- Vatnsleysa / Vallarás
- Varmaland
- Kálfsstaðir
- Efri-Fitjar
- Hof á Höfðaströnd
- Sumarliðabær
- Finnastaðir
- Garðshorn á Þelamörk