Þráinn frá Flagbjarnarholti hlýtur Sleipnisbikarinn

Þórarinn Eymundsson situr Þráinn og við hlið hans eru ræktendur, eigendur, Frú Halla Tómasdóttir For…
Þórarinn Eymundsson situr Þráinn og við hlið hans eru ræktendur, eigendur, Frú Halla Tómasdóttir Forseti Íslands, Ólafur Þórisson formaður deildar hrossabænda og Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands.

Þráinn frá Flagbjarnarholti stóð efstur stóðhesta með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti hestamanna 2026 og hlýtur þar með hinn eftirsótta Sleipnisbikar. Glæsilegur hópur fylgdi Þránni í braut.

Við hátíðlega verðlaunaafhendingu veittu ræktendur Þráins, þau Jaap Groven og Yvonne Groven, auk meðeigenda þeirra í Þráinsskyldi, viðtöku Sleipnisbikarnum, sem veittur er þeim stóðhesti sem stendur efstur á Landsmóti með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.

Sleipnisbikarinn er ein virtasta viðurkenning sem veitt er í íslenskri hrossarækt og er almennt talinn æðsti heiður sem kynbótastóðhestur getur hlotið.

Þau afkvæmi sem fylgdu Þránni voru:
Óratoría frá Kagaðarhóli
Krafla frá Stórhólma
Skjóna frá Tvennu
Skák frá Feti
Rögn frá Feti
Hetja frá Ragnheiðarstöðum
Þorinn frá Tunguhálsi
Náttfari frá Varmalæk
Hengill frá Hestkletti
Þróttur frá Hæli
Fenrir frá Finnastöðum
Safír frá Laugardælum

Árangur Þráins er skýr vitnisburður um markvisst og farsælt ræktunarstarf.

Landsmót hestamanna óskar eigendum Þráins innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur, en eigendur eru þau Þórarinn Eymundsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Magnús Gylfason,  Lilja Sigurlína Pálmadóttir, Ása Hreggviðsdóttir, Birgir Ellert Birgisson, Silja Hrund Júlíusdóttir, Birgir Már Ragnarsson, Halldór Ólafur Halldórsson, Jaap Groven og Yvonne Groven