Undirbúningur fyrir Landsmót gengur vel – tjaldsvæðin eru opin!

Nú styttist óðum í að Landsmót hestamanna 2026 hefjist á Hólum í Hjaltadal og undirbúningur hefur gengið vel. Starfsfólk, verktakar og fjölmargir sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum síðustu daga til að tryggja að allt verði tilbúið þegar mótið hefst.

Við erum ánægð að tilkynna að stæðin með rafmagnstenglum eru nú opin. Búið er að koma rafmagni á allar innstungur og snyrtingar hafa verið tengdar, þannig að gestir sem hafa bókað stæði geta komið sér vel fyrir.

Almenn tjaldsvæði eru einnig opin og tilbúin til að taka á móti mótsgestum. Við hvetjum gesti sem hyggjast mæta snemma til að fylgja leiðbeiningum starfsfólks við komu og velja sér stæði samkvæmt skipulagi tjaldsvæðanna.

Á mótssvæðinu ríkir nú mikil tilhlökkun og síðustu handtökin eru unnin við að gera allt klárt fyrir stærstu hátíð hestamanna. Framundan eru dagar fullir af spennandi keppni, kynbótasýningum, fjölbreyttri skemmtidagskrá í boði Líflands og góðri stemningu.

Við hlökkum til að bjóða gesti, knapa, og sjálfboðaliða hjartanlega velkomna heim að Hólum og eigum von á eftirminnilegu Landsmóti 2026.

Sjáumst á Hólum!