Upplýsingar um aðgengi inn á tjaldsvæði með rafmagni

Vegna mikillar rigningar undanfarna daga eru túnin á tjaldsvæðunum mjög blaut. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að fjölga akstursleiðum inn á rafmagnsstæðin til að auðvelda aðgengi gesta og draga úr álagi á einstaka innganga.

Þetta á sérstaklega við um A-svæðið, sem er fremst á tjaldsvæðinu, frá Þráargötu til og með Kjarvalsgötu. Gestir eru beðnir um að nýta sér nýja innganga inn á svæðið, en þeir eru merktir með rauðu á myndinni hér fyrir neðan. Fyrst er keyrt inn á reiðveginn og þaðan yfir ramp inn á túnin.

Unnið er að því að bera möl í vegslóðana, sérstaklega á helstu álagspunktum, til að bæta aðstæður og auðvelda umferð um svæðið.

Eldri inngangur inn á B-svæðið er opinn og búið er að bera möl í hann. Þá hefur einnig verið opnaður auka inngangur inn á C-svæðið, sem nær frá Erlugötu til og með Baldursgötu. Sá inngangur er einnig merktur með rauðu á myndinni.

Gestir eru hvattir til að sýna tillitssemi, fylgja merkingum og aka varlega. Við þökkum gestum fyrir skilning og samvinnu.