Úthlutun hesthúsaplássa hefur gengið vel

Úthlutun hesthúsaplássa fyrir Landsmót hestamanna hefur gengið vel og nú hefur verið úthlutað til allra þeirra sem sendu inn beiðni á netfangið ingunn@landsmot.is, sem gefið hefur verið upp á heimasíðu Landsmóts.

Formenn allra hestamannafélaga hafa jafnframt fengið sendan upplýsingapóst um þau hesthúsapláss sem félögin hafa fengið úthlutað á Brúnastöðum, hesthúsinu á Hólum. Þau pláss verða á vegum hestamannafélaganna fram yfir forkeppni og milliriðla.

Að þeim loknum tekur við nýtt fyrirkomulag þar sem þeir keppendur sem hafa lokið keppni verða vinsamlegast beðnir um að eftirláta sín stíupláss á Brúnastöðum. Með þessu móti verður hægt að nýta aðstöðuna sem best og tryggja gott flæði og góða þjónustu fyrir keppendur eftir því sem mótinu vindur fram.

Ef einhverjir eru enn í vandræðum með hesthúsapláss eða telja sig þurfa frekari upplýsingar eru þeir hvattir til að hafa samband á netfangið ingunn@landsmot.is.

Við hlökkum mikið til að taka á móti keppendum, hrossum og landsmótsgestum á Hólum.

Bestu kveðjur, 

Hesthúsanefndin