Verið hjartanlega velkomin í Sögusetur íslenska hestsins á Hólum!

Við hvetjum ykkur til þess að notið tækifærið milli sýninga og heimsækið Sögusetur íslenska hestsins, sem er í aðeins um 10 mínútna göngufæri frá Landsmótssvæðinu.

Kynnið ykkur heillandi sögu og uppruna íslenska hestsins og skoðið nýju sýningarnar okkar um litaerfðir, WorldFeng og útbreiðslu íslenska hestsins um allan heim ásamt mikilvægi hans fyrir íþróttir, ræktun og menningu.

Heimsókn í Sögusetrið hentar allri fjölskyldunni og veitir áhugaverða innsýn í sögu og samtíð íslenska hestsins.

Í dag og á morgun er setrið opið frá kl. 11:00 til 20:00, hætt að hleypa inn kl. 19:30. 

Á föstudag og laugardag er opið frá kl. 11:00 til 17:00 og á sunnudagfrá kl. 10:00 til 17:00.

Á meðan Landsmót stendur yfir bjóðum við einnig Happy Hour-verð til kl. 15:00, aðeins 1.000 krónur.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Sögusetri íslenska hestsins!