Fréttir

Stuðlabandið heldur uppi stuðinu á Landsmóti laugardagskvöldið 11. júlí

Stuðlabandið hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem ein allra vinsælasta hljómsveit landsins og er þekkt fyrir kraftmikla sviðsframkomu og smitandi gleði. Hljómsveitin hefur komið fram á fjölda stórhátíða víðs vegar um landið þar sem hún hefur skapað ógleymanlega stemningu fyrir gesti á öllum aldri.

Metfjöldi miða seldur í forsölu – síðasti dagur afsláttar 30. apríl

Áhugi á Landsmóti 2026 hefur farið fram úr væntingum, en metfjöldi miða hefur þegar selst í forsölu. Aldrei áður hafa jafnmargir tryggt sér miða svo snemma, sem staðfestir stöðu viðburðarins sem einn af hápunktum íslensks sumars.

LM2026 og HorseDay innsigla samstarf sumarsins

Smáforritið HorseDay hefur verið í mikilli þróun síðustu árin og sér HorseDay alfarið um niðurstöður hestamóta hérlendis. HorseDay hefur tekið við af gömlu góðu Landsmótskránni sem ekki er lengur gefin út á prenti en í smáforritinu er hægt að finna allar upplýsingar um Landsmótið á einum stað.

Metfjöldi þátttakenda í gæðingakeppni LM2026

LH hefur tekið út félagafjölda hvers hestamannafélags og koma niðurstöður fram í töflunni hér fyrir neðan, og þá jafnframt hversu marga keppendur hvert félag hefur rétt á að senda í hvern flokk gæðingakeppninnar á landsmótinu að Hólum í sumar.

Opið fyrir umsóknir um fjölmiðlapassa á Landsmóti